Heilsugæsla í Árbæjarskóla
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.
Markmið skólaheilsugæslu
Skólahjúkrunarfræðingur Árbæjarskóla kemur frá Heilsugæslustöð Árbæjar sem skólinn á í góðu samstarfi við. Auk þess að skólahjúkrunarfræðingur sinni fræðslu til nemenda í ýmsum málum er markmið skólaheilsugæslunnar að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Skólahjúkrunarfræðingurinn situr í nemendaverndarráði skólans.
Hafa samband
Hjúkrunarfræðingur
Sími / netfang